Af og til skrif

Gamlir jálkar blogga líka!

01.05.2008 02:25:59 / mariajons

Óvæntur frídagur.

Nú er víst kominn 1. maí og árið er 2008.  Guð má vita hvenær ég skrifaði hér síðast en það eru liðnir nokkrir mánuðir og jafnvel ár.
Ég vann frameftir í kvöld og kom heim í tóman kofann og kvöldið hefur liði með áframhaldandi vinnu, spjalli við vini í Færeyjum og í framhaldi af því kom þörf fyrir tjáningu.
Að vinna ein á skrifstofu alla daga og hafa takmörkuð tjáningaskipti við annað fólk gerir það að verkum að heimurinn minnkar óneitanlega. Hann gerir það að verkum að maður fer að efast um eigið ágæti, kann ekki að koma fyrir sig orði og verður afbrigðilegur í mannlegum samskiptum. Stundum er engu líkara en maður sé áhorfandi að lífinu og skilji ekki þær spilareglur sem viðgangast. Ekki það að ég hafi skilið spilareglur þess samfélags sem ég lifi í..........kem liklega aldrei til með það.
Mér finnst ótrúlega gaman að sitja og stúdera fólk. Hef alltaf elskað það. Hreyfingar, viðmót, augntillit og annað sem segir þér ótrúlega margt um fólk. Við hjónin sátum t.d. á torgi og ég var á leiksýningu. Ég hefði getað tjáð manni mínum að eitthvað mikið væri að hjá fólkinu á næsta borði, en hann hefði getað teiknað borðið og umhverfið en ekki eigt mannlega þáttinn. Svona erum við misjöfn af Guði gerð.
Oft vildi ég hafa losnað við þetta næmi mitt og hafa hans eiginleika og þó........ Ég er alltaf á ókeypis leiksýningum og þær geta verið bráðfyndnar, gleðilegar, afar sorglegar og allt þar á milli .
Verst er að lenda sjáfur inni í miðri leiksýningu þ.s. leikstjórinn er afleitur og meðleikarar vita ekki hvert þeirra hlutverk er.  Margir leikaranna eru gamlir og fæddir í leikhúsinu en aðrir nýrri og bláeygðari og koma frá öðrum leikhúsum. Það er eins og maður gæti ímyndað sér að Liverpool mætti Magna frá Grenivík. Hvort liðið ætti sjens?

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.08.2006 17:27:26 / mariajons

Á maður ekki bara að gera aðra tilraun

1000 ár og engin skrif.  Kannski ég fari að taka upp þráðinn aftur.  Dásama veðrið, rífast út af Kárahnjúkum, fara fallegum orðum um gott fólk, tætast og skammast út í bjálfana sem maður, því miður, hittir af og til.  Er samt að hugsa um að setja mig betur inn í funktionirnar og kannski gera eins og Hulda að skipta um svæði.

Á morgun verður bærinn undirlagður menningu.  Vona að guli depillinn hangi uppi því lundin verður léttari og allir eitthvað svo glaðir.


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.07.2005 16:51:00 / mariajons

Sumarfríið að verða búið :o(

Jæja, jæja. Vika eftir af fríinu og mér finns sem ég hafi fengið frí í gær. Súrt Kúrt. Sólarglennan lætur eftir sér að "spreða" á okkur sólargeislum í augnablikinu og hefur reyndar gert svolítið af því sl. 2-3 daga. Ég hef hangið utan á húsinu þegar ég hef komið því við og málað glugga. Allar mínar yfirlýsingar um að maður hefði nú átt að læra einhverja iðngrein s.s. málaraiðn ét ég hér með ofan í mig með glöðu geði og tek öll orð til baka sem tengjast þessu á einhvern hátt. Ekki það að þetta sé svo leiðinlegt heldur er ég ónýt í mínum hægri armi og of ofvirk til að nenna að hanga eftir því að málning þorni áður en hægt er að skella annarri umferð á. Nú er Grímur minn kominn af sjónum, hann strauk, og verður hengdur utan á húsið hið fyrsta. Máninn minn er farinn. Hann var í hálfan mánuð á henni Akureyri og var meðfærilegur og góður. Hann lék sér með nágrannaormunum. Það voru þrír uppátektarsamir ormar sem þurfti að fylgjast með því þeir áttu til að hverfa niður að tjörn, slíta upp skrautplöntur, kála burknum sparka boltanum yfir á fína bíl nágrannans og annað sem fullorðnu fólki finnst ekkert skemmtilegt. Nú er hann hjá ömmu Uglu á Þórshöfn og er líklega líf og fjör hjá henni þ.s. þau eru fimm á aldrinum 9 mánaða til 4 ára og svo öll hin börnin. Jónki er kominn heim frá Egilsstöðum og byrjaður að plana. Hann er alltaf að plana upphátt og ég fer þ.a..l. að blanda mér og reyna að breyta hans flóknu skipulagningu. Það er til að gera hvern mann gráhærðan að reyna að botna í öllu sem hann ætlar að gera. Mennningarlífið á Akureyri er blómlegt þessa dagana en hefur svo gjörsamlega farið framhjá mér. Við fórum reyndar út á Gása í gær og kíktum á íslenska og danska handverksmenn, horfðum á fólk grafa með teskeiðum eftir fornleifum en flýttum okkur svo heim úr norðannepjunni og fengum okkur pönnukökur og kaffi sem ungfrú Anna sá að útbúa handa okkur. Helgi Örn og kærasta hans komu við í kaffi og var mjög gaman að hitta þau. Þau eru í menningunni á Seyðisfirði í sumar og gæti ég alveg hugsað mér að fara þangað og eyða einni viku eða svo. Nú er ég hætt þessu innantóma þvaðri og ætla að smeygja mér í appelsínugula málningagallann því Grímur hefur greinilega farið á vinkonu sína.......... hana.......... Litlu kaffistofuna.

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.06.2005 08:39:28 / mariajons

Sunnudagsmorgunnnnn og klukkan er BARA 8:00

Jæja, jæja. Að skrifa er gott en það háir mér óneitanlega að vera ekki í æfingu. Fyrir það fyrsta tekur það mig alltof langan tíma að rifja upp aðgangssorðið þ.s. vikur og mánuðir líða á milli þess sem ég fer inn á þessa blessaða síðu og í öðru lagi ryðga tjáningastöðvarnar vegna lítillar virkni.
Margt hefur gerst og væri það til að æra óstöðugan að rifja það allt upp. Auk þess nær minni mitt ekki á milli þúfna, eins og góður vinur minn sagði um daginn. Sjómaðurinn kom heim í fyrradag. Hann er reynslunni ríkari og vonandi kemst hann aftur út á sjó. Lét bara vel af sér. Smá sjóveikur fyrsta daginn en........ mér var óglatt allan daginn sem hann fór og leið ekki vel fyrr en ég fékk þær fréttir að allt gengi vel. Ástæðan er mín hroðalega sjóveiki og minningin fær magann í mér til að "slå kolbøtter".
Við hjónin fórum til Kbh. og eyddum þar níu dögum með okkar góðu vinum frá Færeyjum í dásamlegu húsi á Frederiksberg. Síðan fór ég á fund til Kbh. síðar í mánuðinum, bjó hjá Önnunnin minni og gerði eitt og annað. Það sem stóð upp úr var "fernisering" hjá Sossu vinkonu minni sem var frábær. Síðan fórum við mæðgur og hlustuðum á íslenskan kvennakór syngja í sendiráðinu. Það var glettilega gaman miðað við að ég hef aldrei hrifist af kvennakórum. Ég náði að gramsa í gömlu drasli á Ísraels plads, rölta um Strikið og ekki síst að fara í litlu hliðargöturnar og öngstrætin í miðborg Kbh. Við fengum okkur að borða á Mama Rosa og var það ágætt en Calzone pizzan verður aldrei jafngóð og hjá fyrri eigendum. Hvar skyldu þeir vera?
Síðastu helgi var stefnan tekin á stór Reykjavíkursvæðið. Uddan mín lánaði okkur íbúðina þ.s. hún var að dingla sér í Danmörkinni. Þjóðhátíðardagurinn var frábær. Sólin skein og útlandsstemning á Rútstúni í Kópavogi þ.s. Grímsi bróðir og Hildur seldu pylsur grimmt til fjáröflunar fyrir Gerplu. Fórum á Ölstofuna með Dunnu, Steina og Geira og virtum fyrir okkur mannlífið í henni Reykjavík sem var ekki leiðinlegt. Þann 18. var bryllup í Skerjafirði. Öll brúðkaup ættu að vera svona falleg. Það var einhver sérstök jákvæð ára sem lá yfir svæðinu. Brúðhjónin yndisleg, athöfnin falleg, sólin skein á réttum stöðum og regnskúrir komu líka á réttum stöðum. Maturinn hreinn unaður og tárakirtlarnir hreinsaðir þegar börn brúðhjónanna tóku til máls og hláturtaugarnar kitlaðar þegar vinirnir stigu á stokk og rifjuðu upp gamlar minningar.
Nú er ég hætt. Var að taka á móti rútu sem kl. 07:05 með Danmerkurfara þ.e. krakka sem voru á dönskunámskeiði. Allir glaðir og yfir sig ánægðir. Mikill léttir þegar allt gengur vel og allir koma heilir heim.

» 1 hafa sagt sína skoðun

29.05.2005 18:44:40 / mariajons

Sól og 10 gráður á Celsíus

Mikið er gaman að þessi guli blettur í háloftum skuli loksins sýna sig. Hér eru heilar 10 gráður á Celsíus í dag og fólk spókar sig um hálfnakið. Sundlaugin var troðfull í morgun af foreldrum með börn, ömmum og öfum með barnabörn, ungmennum og stökum kerlingum og körlum. Við gamla settið drifum okkur loksins út og hreinsuðum lauf úr runnum og síðan fór húsbóndinn á fullt og sló allt gras og allan graslauk. Elsku stelpur mínar reynið að ná ykkur í landslagsarkitekt eða garðyrkjumann. Mikill fengur yrði af því að fá einn slíkan í fjölskylduna. Jón Ingi kemur í kvöld og hlökkum við mikið til að fá hann. Þvottavélin og uppþvottavélin verða örugglega ánægðar með að fá eitthvað að gera svo ekki sé minnst á eldavélina. Fer til Kbh. á miðvikudag og verð fram á sunnudag. Vona að hitastigið þar haldi sér.

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.04.2005 17:21:26 / mariajons

Sólin skín!!!

Jæja, jæja. Það líður svo lang á milli skrifa minna að ég eyði mjög löngum tíma í að rifja upp passwordið. Hér í höfuðstað Norðurlands skín sólin á réttláta sem rangláta. Veturinn hefur ekki sleppt tökunum ennþá og er fólk því kappklætt á göngu nema auðvitað þessi allra hörðustu sem hlaupa á næfurþunnum brókum. Um miðja næstu viku hefjast Andrésar Andar-leikarnir og verðum við að vona að sólin taki smá pásu svo ekki þurfi að aflýsa leikunum eina ferðina enn. Unga fólkið er mjög aktívt þessa dagana og er hellingur um að vera. Ég verð að játa að ég hef staðið mig mjög illa í að sækja viðburðina en ekki er öll von úti enn þ.s. viðburðir eru út vikuna. Von er á framhaldsskólanemum af öllu landinu vegna söngkeppni, fatahönnunarkeppni og auðvitað ekki síst til að komast í ferskt loft, rólegheit og gott mannlíf. Skoðið www.birting.is Flutningur á skrifstofunni stendur fyrir dyrum og vex mér í augum því margt fylgir honum. Ætla samt að reyna að flytja áður en ég fer til Danmerkur. Að hugsa sér 10 daga í frí með tærnar upp í loft. Vonandi verður hitabylgja þannig að ég geti verið á naríunum flatmagandi í garðinum allan tímann. Nú hætti ég enda andlaus eins og sjá má á þessum skrifum. Nenni ekki einu sinni að skammast út í Össur, tannlækna, heilbrigðiskerfið, söluna á Símanum og annað álíka spennandi sem er að gerast í þessu landi.

» 3 hafa sagt sína skoðun

14.03.2005 22:33:06 / mariajons

Ár og dagur síðan ég skrifaði hér!!!!

Nú er kominn marsmánuður og það meira að segja 14. mars og Huldan mín á afmæli í dag. Trítlan sem kom 5 vikum fyrir tímann og það sitjandi í mestu makindum. Svarthærð, gyllt á lit og bráðfalleg. Margir sem rýndu í gegnum glerið á spítalanum á þennan engil litu í kringum sig í leit að móðurinni og fyrir valinu urðu innflytjendakonur og þær í fríðari kantinum. Ég reyndi að brosa og gefa til kynna að þetta væri mitt barn en það tókst aldrei. Augun runnu mjög fljótt framhjá mér að næstu. Ég er búin að gera margar heiðarlegar tilraunir til að hringja í afmælisbarnið í France en hún svarar ekki. Hvar getur hún verið.....kannski bara hjá fjölskyldunni sinni....vonandi. Er það ekki makalaust að ef ég heyri ekki blessuðuðm börnunum mínum þá verð ég friðlaus. Steinbjörn sleppur þ.s. hann er með fjölskyldu en hin sleppa ekki alveg strax. Hér gaufum við gamla settið í tómum kofanum. Hálf er þetta skrýtið. Hvernig væri nú að gera eitthvað gáfulegt eins og að losa sig við íbúð og skuldir og fara í heimsferð, gerast trillusjómenn, bændur eða eitthvað allt annað? Akureyri hefur klæðs hvítu AFTUR og ég sem var svo fegin að vera laus við snjóinn. Ég og skíðamenn getum aldrei verið sammála þ.s. ég get alveg hugsað mér snjólausan bæ. Fín ef væri hægt að stjórna ofankomunni þannig að hún héldi sig við Hlíðarfjall. Það endar með að ég verð að éta ofan í mig bruðlhugmyndir mínir varðandi snjóframleiðslutækið. Nú er ég hætt. Ekki má ofgera eftir svona langa pásu :)

» 3 hafa sagt sína skoðun

25.01.2005 20:48:44 / mariajons

GLEÐILEGT ÁR!!!!!

Ja, mikill er andskotinn. Komið langt fram í janúar og ekkert verið skrifað. Margar ástæður eru fyrir því og má fyrstar nefna eilíft myrkur, kulda, ófærð og andleysi. Ég hef náð þeim aldri að breytingarskeiðið hefur hafið innreið sína í líf mitt. Því fylgja ekki bara svitaköst heldur fer maður að spyrja sig að því hvern fjandann maður sé að gera. Er eitthvað takmark sem ég hef sett mér í þessu lífi annað en að koma börnunum til manns. Hvað langar mig mest til að gera. Er ég að gera það núna? Ótal spurningar fljúga í gegnum mitt viðkvæma höfuð og er ég að hugsa um að fjárfesta í BÓKINNI sem einhver kona skrifaði og á að hjálpa konum sem hugsa of mikið. Ekki það að þessar hugsanir séu allar gáfulegar heldur má kalla þær ósjálfráða áhyggjuhugsanir. Er ég nú búin að þessu eða þessu eða þessu. Herregud hvað það getur verið þreytandi. Yfir í léttara hjal. Þorri er genginn í garð og ég er að láta mig dreyma um að fara HEIM á þorrablót. Hef reyndar ætlað síðan ég flutti heim frá Danmörku FYRIR 14 ÁRUM SÍÐAN. Framtakssemin er til fyrirmyndar hjá mér. Það tekur um 4 klst. að keyra austur. Sjáum til hvað verður. Ég brá mér til Danmerkur í heila viku um daginn. Það var auðvitað eins og að koma heim. Reyndar var þetta stíf vinnuferð en ég fékk einn góðan virkan frídag og helgidagana. Hitti skólasystur sem ég hef ekki séð síðan 1985. Hún er forstöðukona á skóladagheimili þ.s. íslensku börnin á Solbakken eru. Ég bjó á Solbakken þannig að þetta var ansi skondið. Leikurinn búinn. Við töpuðum og friðurinn úti.

» 0 hafa sagt sína skoðun

13.12.2004 02:58:53 / mariajons

Við erum svo heilbrigð!!!

Halló HEIMUR!
Er þetta ekki dásamlegt líf. Við Íslendingar eigum peninga!!!!!! GÓÐÆRI!!!! Við gefum jólagjafir 15-XXXXXX krónur á fjölskyldumeðlim. Þeir voru margir kaupmennirnir sem glaðir í bragði táðu sig í þætti í kvöld um vaxandi kaupmáttt landans. Fólk kaupir úr fyrir 125.000 krónur (handa honum). Loðfeld fyrir 200.000 (handa henni). Fjarstýrðan bíl handa barninu fyrir 20.000 (selja ógrynni af þeim) frábær jólagjöf sagði alsæll sölumaður. Ekki megum við gleyma þeim sem kaupa Lexus fyrir makann fyrir svo háa upphæð að ég þori ekki að nefna hana.

Hvar bý ég? Það mætti halda að ég og það fólk sem ég umgengst búum ekki í þessu landi. Við erum þó ekki verkafólkið með allra lægstu launin. Er þessi blessuð stjórn ekki að gera í buxurnar. Núna berast fregnir af skattasvindli, sem er "gígantískt", SAMSVARAR REKSTRI SKÓLAKERFIS LANDSINS! Þá röflar þetta pakk um réttlæti. Sjensinn...... að þetta skattasvindl verði krufið til mergjar.

Lækka skatta segja ÞEIR núna. Í þágu hverra. Ég má hundur heita ef VIÐ.... HEIÐARLEGUR ALMÚGINN eigum að fá bita af þeirri köku. Við verðum líklega að borga hana af okkar "stórkostlegu launum". Ég er þreytt kona sem þoli ekki að heyra þetta andskotans kjaftæði lengur. Hvað þarf til á Íslandi? BYLTINGU!!!!!

Jólin er sá sá tími sem allir spenni bogann. Á nokkrum dögum og sérstaklega þann 24. reynum við að sýna hug okkar gagnvart ástvinum (sá dagur er merktur inn á dagatalið).  Gjöfin gæti hafa kostað 100 krónur en er ómetanleg fyrir þann sem hana fær. Hvers eiga börn okkar að gjalda? Við Íslendingar erum fífl!! Við erum að leiða börnin okkar á villigötur og veganestið sem þau fá með út í lífið er að kaupa og kaupa meira. GUÐ HJÁLPI ÞEIM!

Góður saga. SÖNN. Sonur læknis kemur til hans og tjáir að hann ætli í læknisfræði. Faðir hans slær sér á lær og segir að ekkert vit sé í því þ.s. vinnutíminn sé vonlaus og launin léleg. Helgar og helgidagar. Það sé ekkert heilagt varðandi vinnutíma hjá læknastéttinni. Hann hvetur son sinn til að fara heldur í tannlækninn. Dagvinna og helmingi hærra kaup. Eftir u.þ.b. fjórum mánuðum síðar kemur sonurinn og tjáir föður sínum að í tannlækninn fari hann ekki því skv. skattaframtali hafi þeir ekki nema um 70.- 80.000 krónur í laun á mánuði. Hann fór og skoðaði hjá sýslumanni skattayfirlit bæjarbúa og þ.á m. tannlækna. Í dag er þessi drengur í tannlæknanámi og yngri bróðir hans líka. Nú er spurninging? Hvað varð til þess að drengurinn skipti um skoðun. Fór pabbi hans með hann rúnt um bæinn til að sýna honum heimili tannlækna, eða sýndi hann honum skúturnar eða flugvélarnar þeirra. Hvernig komast allir þessir tannlæknar upp með þessi svik? Af hverju eru þeir ekki tengdir inn á sjúkrasamlagskerfið eins og læknar?


» 4 hafa sagt sína skoðun

03.12.2004 19:22:52 / mariajons

Þvílíkur lúxus!!!!!

Mér datt í hug að kíkja á bloggsíðuna úr ferðatölvunni "minni."  Hef til þessa notað macann.  Birtast þá ekki ótrúlegustu möguleikar.  Ég get breytt letri, miðjað og gert hitt og þetta.  Veiiiiiii:D og sett inn broskalla.
Mér líður eins og fimm ára barni sem fékk eitthvað virkilega gott í skóinn.

Allt við það sama í höfuðstaðnum. Julefrokost-æðið er gengin í garð hér á landi. Bóndi minn situr hér og pimpar og hitar upp fyrir skrall kvöldsins.  Hann er að fara að hitta liðið sem hann vann einu sinni með.  Sem betur fer er þetta makalaust, því ekkert er leiðinlegra en að hitta fólk sem mann langar ekki til að hitta og hefur ekki nógu góða afsökun.´

Ég held að börnin mín séu ofvirk eins og móðirin.  Yngsta barnið gerir sér vonir um að komast með landsliði til Mexíco.  Næstyngsta gælir við að fara að vinna á kaffihúsi í Kairó og það á að fara í des.-jan.  Tvö elstu eru sem betur niðurnjörvuð í nám, vinnu og fjölskyldu þannig að meira stabilitet ríkir á þeim frontum.  Þar sem peningar vaxa ekki á trjánum finnst mér þetta óraunhæft, nema julemanden verði óvenju gjafmildur í ár.


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.12.2004 17:15:29 / mariajons

Jólastress??

Ég var nú eiginlega búin að ákveða að hætta þessari vitleysu...........en þar sem ég nenni engu og hef verið að skoða bloggsíður barna minna, rakið mig af þeim yfir á aðrar bloggsiður vina og annarra, tók ég þá ákvörðurn að halda áfram. Þvílíkt rugl og óþverra skrif sem ég hef séð í dag hefur gert mig kjaftstopp. Það gerist sjaldan skal ég segja ykkur. Elsku krakkar mínir verið ekki svona orðljót!!! PLEASE :0) Nú er aðventan gengin í garð. Henni fylgja óþolandi jólalög á öllum rásum útvarpsins, endalausar auglýsingar, jólaseríur í öllum gluggum og því miður minna sumir staðir á "bordel" eða eitthvð ennþá verra. Vogi maður sér inn í búð er næsta víst að maður flækist í jólaskrautinu sem búið er að vefja um öll borð og þakka ég fyrir í hvert skipti sem ég kemst út án þess að hafa brotið engla, jólakúlur eða sjálfa mig. Ávextirnir eru ekki á sínum stað því jólabækurnar hafa yfirtekið stæðið. Þvottaefnið er horfið því þar er jólapappír, gervigrenilengjur og jafnvel sænskar piparkökur. Ég sem ætlaði að kaupa tvo lítra af mjólk og hakk kom út með fulla körfu af einhverju drasli sem ekki stóð til að kaupa. Til þess að þetta veri nú ekki allt ónýtt neyðist ég til að baka um helgina. 40 egg!!!! Ég verð í marga daga að vinna úr þessu. Kannski gef ég bóndanum bara eggjaköku í kvöld. Kosturinn við að ungarnir eru flognir er að ég lít ekki í áttina að eldavélinni oftar en 2-3 í viku.

» 1 hafa sagt sína skoðun

16.11.2004 23:05:47 / mariajons

Hóst, hóst

Var að horfa á þátt um lungnateppu. Hreinn unaður eða hitt þó heldur, að mega eiga von á að fá þetta ógeð og það vegna þess, að ég var einu sinni svo vitlaus að byrja að reykja :o= og vegna þess að ég er svo mikill fikill að ég get ekki hætt. Heppin var ég að dópið náði mér ekki, sjúkk.... hvar væri ég þá?

Ég fór loksins í föt í dag, því ekki gat ég mætt til doksa á náttfötunum. Ég kom út með fulla vasa af lyfseðlum fyrir fúkkalyfjum og öðru álíka spennandi s.s. pústi svona eins og var í lungnateppuþættinum..... Ég ætti kannski að fara að hugsa minn gang.

Ég var að horfa á átakanlega útsendingu á RÚV áðan. Þar lýsti ung stúlka lífi sínu og því sem fylgir lífi dópista. Hugsið ykkur 21 árs gömul. Hún grætur það að geta ekki endurheimt æskuna, fengið að upplifa það að vera barn og unglingur án vímuefna og svo óskaði hún þess eins að mamma hennar myndi vilja elska hana aftur (sem hún örugglega gerir). Þetta minnir vonandi alla foreldra á að elska börnin sín og að vera vakandi og á varðbergi gagnvart vímuefnaneyslu barnanna.

Úti er jólaveður. Allt hvitt, kyrrt og friðsælt. Gegnumglæja á Pollinum og vægast sagt fallegt. Hugsið ykkur! Ég er farin að tala eins og innfædd um veðrið hér í höfuðstað Norðurlands. Yfirleitt ljúga þeir innfæddu þegar þeir tjá sig um veðrið og þ.s. ég er ekki AKUREYRINGUR lýg ég ekki.

Hvernig setur maður broskarla inn??? Þeir koma alltaf óvart hjá mér.
Hvernig breyti ég letrinu? Ef ég reyni að breyta einu orði þá breytist allt í kassanum.

Hvernig fæ ég línubil inn?

Það var eitthvað fleira sem mig vantar að vita. Elsku sendið mér línu ef þið vitið þetta.
GÓÐA NÓTT, god nat, good night, bon nuit....................

» 2 hafa sagt sína skoðun

13.11.2004 17:11:11 / mariajons

Ég hata íþróttir í sjónvarpinu!!!!!!!!!!

Mikið assssssssssskoti er leiðinlegt at vera veikur. Í dag er laugardagur. Gott veður úti og ekkert nema íþróttir, á báðum stöðvum, í ALLAN DAG í sjónvarpinu. Hallgrímur brá sér á svellið að fylgjast með Brynjumóti sem hófst í dag.

Ég er friðlaus og hef hangið á netinu meira og minna. Spjallaði við Jón Inga sem var í heimsókn í Krogerup lýðháskólanum. Hann var bara glenntur og greinilega í góðum gír og góðum félagsskap. MSN-ið er nú frábært annars.

Mér er oft hugsað til þess þegar ég var símamær og samband var geffið á milli húsa: "Viltu gefa mér samband við númer 19". Ekki var ónýtt þegar númer 25 talaði við númer 40. Ég get lofað ykkur að það var hlustað og gjarnan blandaði maður sér inn í þær "gáfulegu" samræður sem oft fóru þar fram á milli tveggja jafnaldra minna.

Að fá línu til Reykjavíkur var ekki auðvelt og varð það í fyrstu að gerast í gegnum Akureyri eða Raufarhöfn. Oft var langur listi af biðsímtölum og kannski tókst ekki að afgreiða öll pöntuð samtöl því engin lína fékkst. Hugsið ykkur það eru 30-35 ár síðan þetta var. Nú spjallar maður við fólk um allan heim úr tölvunni á heimilinu.

Tæknivæðingin gengur allt of hratt fyrir sig að mínu mati. Ég vildi ekki vera 20 árum eldri og eiga sjéns á því að fylgjast með. Ég var að spjalla við móður mína í dag og fór hún að tala um þátt sem var í sjónvarpinu í gærkvöldi. Persónan sem var gestur þáttarins var að sögn langömmu skyld okkur, en hvernig vissa mamma ekki. Ég veit ekki hvert hún móðir mín ætlaði þegar ég sagði: "Bíddu, ég tékka á Íslendingabók á netinu". Undrun múttu var mikil, þegar ég sagði henni að þetta hefði verið rétt hjá langömmu og orðlaus varð hún þegar ég gat rakið fyrir henni hvernig skyldleikanum er háttað.



Jæja, þá er best að fara að bæla sig smástund. Ég er komin með strengi í kviðinn af öllum þessum hósta og nefið á mér, sem er nú frekar stórt, er rautt, ennþá stærra og haldið ofsakláða með tilheyrandi hnerrum minnst 100x á sólarhring :O( ȁŗȈ⶘ϰӮ

» 3 hafa sagt sína skoðun

12.11.2004 10:21:55 / mariajons

Flensa og fannfergi

Til hvers að opna bloggsíðu ef aldrei er skrifað? Ég hef þó löglega afsökun, því mörg ár eru síðan ég hef orðið svona hundlasin. Ég skreiðist á milli rúms og sófa. Hausinn þungur sem bly, hóstinn rámur sem í rollu og augun rauð sem í ófreskju. Ég gæti nýst sem miðstöð í köldum herbergjum því þvilík er hitaútgufunin frá mér, en það undarlega er að ég gæti einnig nýst sem kæliklefi. Kulda og hitasveiflur eru ógurlega og dettur mér helst í hug að hitastillirinn minn sé ónýtur, endanlega.

Auðvitað er kominn snjór og laukarnir mínir eru ennþá niðri í kjallara. Framtaksseminni er ekki fyrir að fara. Það þiðnar aftur og þá verð ég orðin eldhress og ofvirk vegna aðgerðaleysis.

Hallgrímur og tengdó fóru á frumsýningu í gærkvöldi. Sýnd voru stykkin Ausan og Stólarnir. HI tjáði sig nú ekki mikið um sýninguna en kvað Ilmi Kristjáns hafa verið frábæra. www.leikfelag.is

Litla fjölskyldan á Þórshöfn er að leggja land undir fót í þessum skrifuðu orðum. Þau eru að heimsækja Svölu, sem bundin er við rúm á Landspítalanum þar til keisari verður framkvæmdur um mánaðarmót. Ég er hrædd um að hann bróðir minn verði að ná sér í aukavinnu því fargjald á milli Reykjavíkur og Þórshafnar er á við miða til USA. Gaman væri að vita hvort heilbrigðisyfirvöld taki þátt í svona kostnaði. Mjög ólíklegt að tekið sé tillit til að fjölskyldur þurfi að hittast þegar um veikindi er að ræða.

Nú er ég hætt þessu röfli. Hver er Gulla frænka????

» 1 hafa sagt sína skoðun

09.11.2004 17:41:55 / mariajons

Hvað gerir Þórólfur?

Nú bíð ég spennt eftir fréttum kl. 18:00. Þá ku Þórólfur borgarstjóri hafa boðað til blaðamannafundar. Mér segir svo hugur að hann segi af sér. Hvað með höfuðpaurana. Ætli þeir hafi samvisku???????? Kennaraverkfall skall á aftur í dag og þakka ég góðum vættum fyrir að börn mín eru ekki lengur í grunnskólanum. Ungviðið með lykla um hálsinn og vonleysisglampa í augum fylla nú Kringlur, Kleinur og aðra stórmarkaði landsins. Uppbyggilegt þetta. Kennarar og foreldrar eru ekki öfundsverðir þegar þessu lýkur því verkefnin verða mörg og erfið. Annars er hér ennþá snjólaust (guði sé lof) og haustlaukarnir sem ég náði ekki að pota niður eiga ennþá sjéns. Fæ kannski minn bráðduglega eiginmann til að vopnast vasaljósi og lýsa mér við verknaðinn sem verður að gerast í skjóli nætur, af tillitssemi við tunguhvassa nágranna. Þetta er ekki nógu mergjað til að gefa þeim tilefni til að hneykslast.

» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2